Á fyrsta fund vetrarins 22. september mun Björn Oddsson koma. Fundurinn verður í Skátalundi og hefst kl. 20.

Björn Oddsson er jarðfræðingur og stundar doktorsnám við Jarðvísindastofnun Háskóla Íslands.  Rannsóknir hans snúa að samspili elds og ísa og spanna athuganir hans allt frá tilraunum í rannóknarstofum til eldgosa í fullri stærð út í náttúrunni.  Björn sinnti daglegri eldgosavakt í eldgosunum á Fimmvörðuhálsi og Eyjafjallajökli 2010.  Vorið 2011 tók hann þátt í eftirliti með Grímsvatnagosinu ásamt könnunarflugum með jarðhitakötlum sem mynduðust í Vatnajökli.  Björn hefur farið reglulega í mælingaferðir sem snúa að athugunum á jöklum og eldvirkni síðastliðin 10 ár auk þess að vera virkur meðlimur í Björgunarsveit Hafnarfjarðar.

Björn mun fjalla almennt um eldgos undir jöklum með áherslum á Grímsvötn og Eyjafjallajökul.  Fyrirlesturinn verður myndrænn þar sem mikið af áhugaverðu myndefni, jafnt kvikmyndir sem ljósmyndir, hefur safnast á síðustu misserum.