Landsþing Skátagildanna á Íslandi verður haldið í Safnaðarheimili Keflavíkurkirkju 9. maí nk. en það er St. Georgsgildið í Keflavík sem sér um þinghaldið.

Gildisfélagar eru hvattir til að taka þátt í dagskránni og hægt er að velja um að taka þátt í öllu þinginu, eða aðeins þinghaldinu sjálfu, skoðunarferðinni um Reykjanes eða hátíðarkvöldvökunni og kvöldverðinum.

Þinggögn eru afhent kl. 9.15-10 en þingdagskrá hefst kl. 10.

Dagskrá:

  • 09.15-10.00  Þinggögn afhent og tekið við greiðslum. Létt morgunsnarl.
  • 10.00  Þingsetning og dagskrá skv. samþykktum Skátagildanna á Íslandi.
  • 12.00  Léttur hádegisverður
  • 12.45  Þingstörfum framhaldið.
  • 14.00  Þinglok og kaffispjall
  • 14.30  Skoðunarferð um Reykjanes undir leiðsögn Rannveigar Garðarsdóttur.
  • 17.00  Hlé
  • 19.30  Hátíðarkvöldvaka og kvöldverður í safnaðarheimili Keflavíkurkirkju. Í lok hátíðarkvöldvöku verður slegið upp léttum dansleik þar sem danshæfileikar gildisfélaga fá að njóta sín.
  • Hlaðborð – m.a. lambalæri, laxastemmning, kartöflugratín, salat, gildissósan, töfrar Arabíu og fleira.
  • Gosdrykkir
  • Kaffi og konfekt.
  • Drykkir eru seldir á staðnum en fólki er einnig heimilt að taka með sér.
  • Að venju er gert ráð fyrir skemmtiatriðum frá hverju gildi. Söngbækur verða á staðnum.