Samkvæmt venju eru mót NSBR haldin þriðja hvert ár, til skiptis í aðildarlöndunum. Reynslan hefur sýnt að það er gefandi að koma saman og það eykur samstöðu okkar á ýmsum stöðum ekki síst í alþjóðasamstarfinu.

Það sýndi sig í valinu á Alf Runar Bakke frá Noregi í Alþjóðaráðið á síðustu heimsráðstefnu í Sidney. Hann  verður gestur á mótinu í Horsens 26.-30. júní 2015.

Þema mótsins er: „Traditionen tro eller  tro mod tradiotionerne?“ (Lauslega þýtt: Trúr hefðum eða trú á hefðir).

Föstudaginn 26. júní

  • 12-16 Koma og skráning.
  • 16.30 Gestir boðnir velkomnir og mótið sett.
  • Kvöldverður, gömul kynni og ný, án dagskrár.

Laugardaginn 27. júní

  • Tveir  fyrirlesarar  ræða þema mótsins út frá mismunandi menningarlegum sjónarhornum.
  • Að loknum hádegisverði verður ferð í fyrrum Ríkisfangelsið í Horsens með leiðsögn og fyrirlestri.
  • Kvöldverður.
  • Landskeppni í skífukasti, samkvæmt hefð.
  • Kvöldinu lýkur á varðeldi með skemmtiatriðum.

Sunnudaginn 28. júní

Ferð til Jelling:

  • Heimsókn í Jelling-kirkju, fræðsla verður um rúnarsteinana, víkingatímann og merkisatburði í sögu Dana og  sagt frá gullhornunum. Hádegisverður í nestisformi.
  • Kvöldverður á Hótel Vejlefjord – e.t.v. tengdur smiðjustarfi.
    29. júní

Mánudaginn 29. júní

  • Sigling með skipinu „Mågen‟ á Silkiborgarvötnum og hádegisverður snæddur á Himmelbjerget.
  • Á Bygholm verður síðan gildishátíð og hátíðarkvöldverður í framhaldi af því.

Þriðjudaginn 30. júní

  • Morgunverður og brottför

Skátaforingi frá Færeyjum hélt athyglisverða ræðu á norrænni skátaráðstefnu fyrir nokkrum árum síðan, hún ræddi um fundinn, að hittast, hún taldi það mikilvægasta þátt skátastarfsins

 

Að vera í náttúrunni, að horfast í augu við eigin takmarkanir, að mæta nýjum viðhorfum o.s.frv.

Sannarlega hafði hún rétt fyrir sér. Fundurinn, það að hittast, hlýtur að vera það mikilvægasta, líka í gildisstarfinu.

Velkomin á mótið á Bygholm þar sem samveran er aðalmálið.

Verð:

  • Pakkatilboð: Gisting, fæði og allar ferðir, verð 5.500 DKK.
  • Ef fólk vill sjálft velja sér gistingu t.d. á farfuglaheimilum eða tjaldsvæðum eða öðru, er verðið 3.900 DKK.

Umsóknareyðublöð má finna hér

Umsókn er gild ef greiddur hefur verið helmingur kostnaðar fyrir 1. febrúar 2015. Síðari hluti skal greiðast fyrir 19. mars 2015 sem einnig er lokafrestur á skráningu.

Við vonumst til að sem flestir mæti og hlökkum til að sjá ykkur.

Sjá nánar

Kynningarblað