Vináttudagurinn 2011 verður haldinn sunnudaginn 23. október nk. í umsjá Straums.

Dagskráin verður með eftirfarandi hætti:

  • Kl.  13:50  Safnast saman við inngang Árbæjarsafns
  • Kl.  14:00   Skoðunarferð um Árbæjarsafn,  með leiðsögumanni. þar sem við munum skoða gamla bæinn, kirkjuna, gamla Lækjarbotaskálann og Tjöruhúsið, ef tíminn leyfir.
  • Kl.   15:15  Komið saman í Skátamiðstöðinni við Hraunbæ

Kaffiveitingar og vináttudagsdagskrá með hefðbundnu sniði.

Áætlað að dagskrá verði lokið kl. 17.00

Þátttakendur sem koma í Árbæjarsafn greiða kr. 600 í aðgangseyri, (örorku- og ellilífeyrisþegar greiða ekki).

Gjald fyrir kaffiveitingar kr. 1.500.

Vinsamlegast tilkynnið  um fjölda þátttakenda  frá hverju gildi, eigi síðar en 19. okt. á netfangið  bjornvignir@rls.is