Hveragerðisgildið býður til Vináttudagsins sem verður í Hveragerði sunnudaginn 19. október kl. 14 í Skátaheimilinu að Breiðumörk 22.

Þar ætlum við að hlýða á boðskap dagsins og eiga notalega stund saman. Norbert Muller hjúkrunarfræðingur kemur og  kennir okkur að hlægja.

Þau skátagildi sem vilja, komi með sín skemmtiatriði.

Veitingar kosta kr. 1.200,- á mann. (Hraðbanki í næsta húsi).

Gildismeistarar eru beðnir að skrá þátttöku félaga sinna fyrir þriðjudaginn  14. október n.k. til Magneu Árnadóttur í síma 862 0842, 483 4440 eða eða á maggadís@símnet.is